Hoppa yfir valmynd
23. janúar 2009 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 23. janúar 2009

FUNDARGERÐ

Ár 2009, föstudaginn 23. janúar var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Kolbrún Linda Ísleifs-dóttir, Ágústa Þorbergsdóttir og Veturliði S. Óskarsson. Neðangreind mál voru tekin fyrir:

  

1.         Mál nr. 08/2009          Millinafn:         Brúnsteð

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Millinafnið Brúnsteð er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Brúnsteð uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Brúnsteð er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

2.         Mál nr. 09/2009          Eiginnafn:        Jólín  (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Jólín (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið fallbeygist þannig: Jólín (nf.) – Jólín (þf.) –  Jólín (þgf.) – Jólínar (ef.).

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Jólín  (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsendingu þess, Jólínar.

 

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum