Hoppa yfir valmynd
27. febrúar 2009 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 27. febrúar 2009

FUNDARGERÐ

Ár 2009, föstudaginn 27. febrúar var haldinn fundur í mannanafnanefnd að Neshaga 16, Reykjavík. Mætt voru Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, Ágústa Þorbergsdóttir og Veturliði S. Óskarsson. Neðangreind mál voru tekin fyrir:

 

 





3.         Mál nr. 19/2009          Eiginnafn:        Rami  (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: 

·          Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).

·          Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

·          Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef það brýtur í bág við önnur ákvæði 5. gr. laganna, þ.e. 2. málslið 1. mgr., 2. mgr. og 3. mgr. 5. gr.

 

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningar-helgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Eiginnafnið Rami (kk.), í eignarfalli Ramis, brýtur í bág við íslenskt beygingakerfi enda beygjast engin karlkynsorð á þann hátt í íslensku, hvorki samnöfn né sérnöfn.

 

Samkvæmt gögnum Þjóðskrár eru þrír karlar skráðir með eiginnafnið Rami (fyrra nafn hjá einum, síðara nafn hjá öðrum og annað nafn af þremur hjá þeim þriðja) sem uppfylla skilyrði ofangreindra vinnulagsreglna. Sá elsti þeirra er fæddur árið 1985. Hjá þeim öllum er annað foreldra af erlendum uppruna. Því telst ekki vera hefð fyrir þessum rithætti. Eiginnafnið Rami (kk.) uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 og því er ekki mögu-legt að fallast á það.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Rami (kk.) er hafnað.

 

 

4.         Mál nr. 20/2009          Eiginnafn:        Emerald  (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

·          Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).

·          Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

·          Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef það brýtur í bág við önnur ákvæði 5. gr. laganna, þ.e. 2. málslið 1. mgr., 2. mgr. og 3. mgr. 5. gr.

 

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

 

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningar-helgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Nafnið Emerald er þekkt sem kvenmannsnafn víða um heim, sbr. The Oxford Dictionary of English Christian Names eftir E.G. Withycombe og vefsíðuna Behind the Name, http://www.behindthename.com/name/emerald.

Nafnið Emerald sem karlmannsnafn brýtur þannig í bág við 2. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um að stúlku skuli gefa kvenmannsnafn og dreng skuli gefa karlmannsnafn. Samkvæmt gögnum Þjóðskrár er enginn karl skráður með eiginnafnið Emerald sem uppfyllir skilyrði ofangreindra vinnulagsreglna. Því telst ekki vera hefð fyrir nafninu Emerald sem karlmannsnafni enda heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja sama nafn sem kven-mannsnafn og karlmannsnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar. Eiginnafnið Emerald (kk.) uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 og því er ekki mögulegt að fallast á það.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Emerald (kk.) er hafnað.

 

 

 

5.         Mál nr. 21/2009          Eiginnafn:        Sveinar  (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Sveinar (kk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið fallbeygist þannig: Sveinar (nf.) – Sveinar (þf.) –  Sveinari (þgf.) – Sveinars (ef.).

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Sveinar  (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

6.         Mál nr. 22/2009          Eiginnafn:        Zar  (kk.)

                                               Millinafn:         Zar

 

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

·          Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).

·          Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

·          Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef það brýtur í bág við önnur ákvæði 5. gr. laganna, þ.e. 2. málslið 1. mgr., 2. mgr. og 3. mgr. 5. gr.

 

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

 

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningar-helgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Öll skilyrði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru neðangreind:

·          Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.

·          Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karl eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.

·          Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

·          Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 Eiginnafnið Zar (kk.) og millinafnið Zar brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Þau geta ekki talist rituð í samræmi við ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn ‚z‘ telst ekki til íslenska stafrófsins þótt hann komi fyrir í nokkrum mannanöfnum sem hafa unnið sér hefð. Bókstafurinn ‚z‘ var numinn brott úr íslensku ritmáli í septembermánuði 1973 með auglýsingu menntamálaráðuneytisins nr. 272/1973, sbr. núgildandi auglýsingar nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

 

Samkvæmt gögnum Þjóðskrár er enginn karl skráður með eiginnafnið eða millinafnið Zar. Þess má einnig geta að eiginnafnið Zar eða Sar kemur ekki fyrir í „Skrá um eiginheiti karla fæddra á Íslandi samkvæmt manntalinu 1. desember 1910“ og heldur ekki í eldri manntölum. Sama gildir um skýrslu um ættarnöfn á Íslandi árið 1855,  skrá um ættarnöfn samkvæmt manntalinu 1. desember 1910 og leyfð ættarnöfn á árabilinu 1915-1925. Því telst ekki vera hefð fyrir þessum rithætti, hvorki sem eiginnafn kk. né sem millinafn.

 

Eiginnafnið Zar (kk.) uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og millinafnið Zar uppfyllir ekki heldur ákvæði 6. gr. sömu laga og því er ekki hægt að fallast á þau.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið og ritháttinn Zar  (kk.) er hafnað.

Beiðni um millinafnið og ritháttinn Zar er hafnað.

 

 

 

8.         Mál nr. 24/2009          Millinafn:         Júl

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Millinafnið Júl er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Júl uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Júl er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

  

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum