Hoppa yfir valmynd
2. mars 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Nýr forstjóri tekinn til starfa

Lára, Huld, Ásta Ragnheiður og Hanna SigríðurHuld Magnúsdóttir, nýr forstjóri Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, tók til starfa í dag. Í upphafi fyrsta vinnudags átti Huld stuttan fund með Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, Hönnu Sigríði Gunnsteinsdóttur ráðuneytisstjóra og Láru Björnsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs félags- og tryggingamálaráðuneytisins.

Huld hefur starfað hjá Össuri hf. í 15 ár. Hún hefur langa stjórnunarreynslu að baki og undanfarin ár hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri framleiðslu- og dreifingarsviðs Össurar í Bandaríkjunum. Hún er með B.A.-próf í alþjóðasamskiptum frá University of Sussex í Englandi og hefur samhliða starfi sínu í Bandaríkjunum stundað meistaranám í viðskiptum við Viðskiptaháskólann á Bifröst.

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga er ný stofnun sem tók til starfa samkvæmt lögum nr. 160/2008 þann 1. janúar síðastliðinn.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum