Hoppa yfir valmynd
11. mars 2009 Innviðaráðuneytið

367 milljónir í umferðaröryggisáætlun í ár

Framlag til umferðaröryggisáætlunar verður í ár alls 367 milljónir króna. Samgönguráðherra kynnti áætlunina í dag og um leið var skrifað undir samninga um umferðareftirlit milli Ríkislögreglustjóra annars vegar og hins vegar Vegagerðarinnar og Umferðarstofu.

Umferðaröryggisáætlun kynnt
Umferðaröryggisáætlun kynnt

,,Fé sem lagt er í forvarnir í umferðarmálum er verðmæt fjárfesting,” sagði Kristján L. Möller samgönguráðherra meðal annars í ávarpi sínu. ,,Á meðan kostnaður þjóðfélagsins vegna umferðarslysa mælist í milljörðum króna er afar brýnt að við höldum áfram þeim þýðingarmiklu verkefnum sem fólgin eru í umferðaröryggisáætlun. Féð sem við leggjum í umferðaröryggismál skilar sér margfalt, það er ekki flóknara.”

Stærstu liðir umferðaröryggisáætlunar eru sem fyrr aðgerðir á sviði öryggis vega og umhverfis þeirra. Verður veitt 110 milljónum króna til að eyða svartblettum í þjóðvegakerfinu, 100 milljónum til að lagfæra umhverfi vega og koma upp vegriðum og 10 milljónir fara í gerð hvíldarsvæða.

Viðbótar umferðareftirlit fyrir 76 milljónir króna

Annar stærsti liðurinn eru áðurnefndir samningar við Ríkislögreglustjóra að upphæð 76 milljónir króna.

Annar samningurinn tekur til eftirlits lögreglu með ökuhraða, eftirlits með ölvunarakstri og annars hefðbundins eftirlits lögreglu með umferðinni. Lögð er á það áhersla eins og í fyrri samningi að þessi verkefni komi til viðbótar hefðbundnu eftirliti lögreglunnar.

Hinn samningurinn er um að greiða tvær stöður lögreglumanna í Stykkishólmi vegna úrvinnslu sekta úr löggæslumyndavélum vegna hraðakstursbrota. Er það eftirlit einnig viðbót við það eftirlit sem þegar er fyrir hendi og er því bein aukning á eftirliti með hraðakstri á vegum úti. Umferðarmælar Vegagerðarinnar hafa sýnt að umferðarhraði á þjóðvegum hefur farið lækkandi að undanförnu og má ætla að eftirlitið með löggæslumyndavélum eigi sinn þátt í þessari þróun.

Alls verða lagðar 36,5 milljónir króna í áróður og fræðslu. Eru það annars vegar ýmis áróðurs- og auglýsingaverkefni og hins vegar fjárveiting til umferðarfræðslu sem Grundaskóli á Akranesi stýrir og sinnir sérstaklega í samstarfi við nokkra aðra skóla og hefur gefið góða raun. Þá fara 12,5 milljónir króna í samstarf og þróun og til forvarna vegna erlendra ökumanna.

Þótt umfang umferðaröryggisáætlunar sé nokkru viðaminna en ráðgert var vegna efnahagsástandsins hefur tekist að halda inni mikilvægustu verkefnunum á sviði lagfæringa á svartblettum og umferðareftirliti. Áfram eru því stigin mikilvæg skref í átt til þess að bæta umferðaröryggi í samræmið við markmið umferðaröryggisáætlunarinnar.

  • Ávarp Kristjáns L. Möller samgönguráðherra við undirritun samninganna

    Samningar um umferðareftirlit undirritaðir  
    Samningar um umferðareftirlit voru undirritaðir í Litlu kaffistofunni miðvikudaginn 11. mars. Frá vinstri: Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri, Karl Ragnars, forstjóri Umferðarstofu, Kristján L. Möller samgönguráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri.      
     Umferðaröryggisáætlunin var kynnt á blaðamannafundi í Litlu kaffistofunni.      
    Umferðaröryggisáætlunin var kynnt í Litlu kaffistofunni og ritað undir samninga um umferðareftirlit lögreglunnar.      

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum