Hoppa yfir valmynd
30. mars 2009 Dómsmálaráðuneytið

Greiðsluaðlögun samþykkt á Alþingi

Í dag voru samþykkt á Alþingi lög um breytingu á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., greiðsluaðlögun, sem taka gildi 1. apríl nk.

Í dag voru samþykkt á Alþingi lög um breytingu á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., greiðsluaðlögun, sem taka gildi 1. apríl nk. Með þessari breytingu á lögunum er skuldara gert kleift að leita nauðasamnings til greiðsluaðlögunar við kröfuhafa sína með aðstoð umsjónarmanns.

Ragna Árnadóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, mun með reglugerð fela Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna að aðstoða þá sem sækja um greiðsluaðlögun við gerð beiðni, greiðsluáætlunar og annarra nauðsynlegra fylgigagna sem og að veita frekari upplýsingar. Upplýsingar verður að finna á heimasíðu Ráðgjafarstofunnar, http://www.rad.is, frá 1. apríl nk.

Reglunum um greiðsluaðlögun er ætlað að aðstoða þá skuldara sem glíma við verulegan fjárhagsvanda og eru ófærir um að standa í skilum með skuldir sínar um fyrirséða framtíð. Greiðsluaðlögun tekur til skulda sem ekki eru tryggðar með veði í eignum skuldara. Um málsmeðferðina gilda hinar almennu reglur nauðasamninga með ákveðnum frávikum sem einfalda málsmeðferðina.


Sjá lögin hér á vef Alþingis.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum