Hoppa yfir valmynd
12. júní 2009 Dómsmálaráðuneytið

Tvö embætti héraðsdómara laus til setningar tímabundið

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið auglýsir nú, samkvæmt tillögu dómstólaráðs, tvö embætti héraðsdómara laus til setningar tímabundið, meðan á leyfi skipaðra dómara stendur.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið auglýsir nú, samkvæmt tillögu dómstólaráðs, tvö embætti héraðsdómara laus til setningar tímabundið, meðan á leyfi skipaðra dómara stendur. Annað embættið er laust frá 1. september 2009 til 28. febrúar 2010 og hitt frá 1. september 2009 til 30. júní 2010.

Dómsmálaráðherra setur í embættin að fenginni ábendingu dómstólaráðs um umsækjanda til starfans.Umsóknir skulu berast dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, Skuggasundi, 150 Reykjavík, eigi síðar en 29. júní nk.

Sjá auglýsingar á starfatorgi, www.starfatorg.is:

Embætti héraðsdómara laust til setningar í 10 mánuði.

Embætti héraðsdómara laust til setningar í 6 mánuði.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum