Hoppa yfir valmynd
28. ágúst 2009 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Sala hafin á háhraðanettengingum

Sala á háhraðanettengingum á vegum fjarskiptasjóðs er hafin í Skagafirði og Akrahreppi. Uppbygginu kerfis er lokið og við tekur sala og uppsetning á þeim 374 stöðum á þessu fyrsta markaðssvæði verkefnisins sem byggist á markmiði fjarskiptaáætlunar samgönguráðuneytisins um að gefa öllum landsmönnum sem þess óska kost á háhraðanettengingu.

Háhraðaverkefni fjarskiptasjóðs hófst formlega 25. febrúar síðastliðinn með undirritun samnings sjóðsins fyrir hönd samgönguráðuneytisins og Símans hf. sem átti hagkvæmasta tilboðið í verkefnið. Samið var um tengingu rúmlega 1.700 staða víðs vegar um land og eru verklok áætluð í árslok 2010.

Uppbygging á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi nýtur forgangs í verkáætlun.

Mismunandi tækni er notuð til að tengja hvern stað en hraði hverrar tengingar er meðal annars háður tækninni og fjarlægð staðar frá sendistöð. Tengingar í boði með 3G kerfi Símans verða 1Mb/s - 2Mb/s fram að verklokum. Eftir það verður boðið uppá pakka með meiri hraða. ADSL tengingar verða í boði þar sem hentugt verður að koma þeim við. Notuð verður gervihnattatækni í nokkrum undantekningartilvikum þar sem erfitt verður að koma við hefðbundnum aðgangsnetum.

Símanum hf. ber að bjóða íbúum þjónustu en þess er vænst að aðrir söluaðilar netþjónustu bjóði íbúum einnig þjónustu enda stendur það öllum söluaðilum til boða.

Nánari upplýsingar um starfsemi fjarskiptasjóðs er að finna á vef fjarskiptasjóðs.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum