Hoppa yfir valmynd
9. október 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Vasapeningar aldraðra lækka ekki

Vegna misskilnings sem fram hefur komið í fjölmiðlum vill félags- og tryggingamálaráðuneytið árétta að upphæð vasapeninga til aldraðra á stofnunum verður ekki lækkuð. Óskertir vasapeningar eru 41.895 krónur á mánuði.

Í frumvarpi til fjárlaga næsta árs kemur fram að útgjöld vegna vasapeninga til aldraðra á stofnunum verði 352 milljónir króna. Þetta er lægri upphæð en í fjárlögum síðasta árs og virðist það hafa leitt til þess misskilnings að ákveðið hafi verið að lækka fjárhæð vasapeninga til einstaklinga. Þetta er ekki rétt heldur stafar lækkun heildarútgjalda af því að með vaxandi lífeyrisréttindum fækkar stöðugt í hópi aldraðra sem eru tekjulausir og fá þess vegna greidda vasapeninga. Á fjárlögum þessa árs voru heildarútgjöld vegna vasapeninga ofmetin og hefur það verið leiðrétt í fjárlögum ársins 2010.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum