Hoppa yfir valmynd
28. október 2009 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 28. október 2009

FUNDARGERÐ

Ár 2009, miðvikudaginn 28. október, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, Ágústa Þorbergsdóttir og Baldur Sigurðsson. Neðangreint mál var tekið fyrir:

 

 

1.         Mál nr.  80/2009         Eiginnafn:        Moli  (kk.)       

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Moli  (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Mola, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Moli (kk.)  er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

--------------------------------------------

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

Ágústa Þorbergsdóttir  (sign)

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum