Hoppa yfir valmynd
2. desember 2009 Matvælaráðuneytið

Tollkvótar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópubandalaginu.

Tollkvótar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópubandalaginu.

            Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópubandalagsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar dags. 1. desember 2009, um úthlutina, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópubandalagsins og með upprunavottorð þaðan:

 

Vöruliður:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

 

 

 

kg

%

kr./kg

0202

Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst

01.01.10 - 31.12.10

100.000

0

0

 

 

 

 

 

 

0203.2100,  0203.22xx

Svínakjöt, fryst

01.01.10 - 31.12.10

100.000

0

0

 

 

 

 

 

 

0203.29xx

Svínakjöt, fryst

01.01.10 - 31.12.10

100.000

0

0

 

 

 

 

 

 

0207.1200, 0207.3300

Kjöt af alifuglum, fryst

01.01.10 - 31.12.10

100.000

0

0

 

 

 

 

 

 

0207

Kjöt af alifuglum, fryst

01.01.10 - 31.12.10

100.000

0

0

 

 

 

 

 

 

ex 0210

Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum (**)

01.01.10 - 31.12.10

50.000

0

0

 

 

 

 

 

 

ex 0406

Ostur og ystingur (**)

01.01.10 - 31.12.10

20.000

0

0

 

 

 

 

 

 

0406

Ostur og ystingur

01.01.10 - 31.12.10

80.000

0

0

 

 

 

 

 

 

1601

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum

01.01.10 - 31.12.10

50.000

0

0

 

 

 

 

 

 

1602

Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum

01.01.10 - 31.12.10

50.000

0

0

 

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 510/2006 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla

 

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Tilboð skulu ráða úthlutun. Úthlutun er ekki framseljanleg. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 509/2004.

            Skriflegar umsóknir skulu berast til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 15:00 miðvikudaginn 9. desember 2009.

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 2. desember 2009.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum