Hoppa yfir valmynd
11. desember 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Auglýsing um Framkvæmdasjóð aldraðra

Samstarfsnefnd um málefni aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2010. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2010. Hlutverk Framkvæmdasjóðs aldraðra er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglugerð nr. 1033/2004. Samstarfsnefnd um málefni aldraðra fer með stjórn sjóðsins og gerir tillögur til félags- og tryggingamálaráðherra um úthlutun úr honum.

Heimilt er að veita framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra til eftirtalinna verkefna:

  1. Bygginga þjónustumiðstöðva aldraðra og dagvista.
  2. Bygginga  dvalarheimila og sambýla.
  3. Bygginga hjúkrunarheimila eða hjúkrunarrýma á öldrunarstofnunum.
  4. Breytinga og endurbóta á húsnæði stofnana sbr. a – c lið.
  5. Annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu.

Við ákvörðun um úthlutun verður höfð hliðsjón af stefnu félags- og tryggingamálaráðherra í öldrunarmálum einkum varðandi fækkun fjölbýla á hjúkrunarheimilum. Skilyrði fyrir framlögum til byggingaframkvæmda, breytinga og endurbóta á húsnæði er að framkvæmdir taki mið af viðmiðum félags- og tryggingamálaráðuneytisins  um skipulag hjúkrunarheimila.

Umsóknarfrestur er til  15. janúar 2010. Umsóknum skal skila til félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík, á eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin má einnig nálgast hér:

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum