Hoppa yfir valmynd
18. desember 2009 Innviðaráðuneytið

Ísland og Noregur aðilar að loftferðasamningi ESB og Bandaríkjanna

Ísland og Noregur hafa gerst aðilar að loftferðasamningi Evrópusambandsins og Bandaríkjanna sem skrifað var undir í apríl 2007 og tók gildi vorið 2008. Samningurinn veitir flugfélögum í löndunum tveimur aukinn rétt til farþega- og fraktflugs milli Evrópu og Bandaríkjanna.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra undirritar loftferðasamning í Brussel.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra undirritar loftferðasamning í Brussel.

 

Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skrifaði í gær, fimmtudaginn 17. desember, undir samninginn í Brussel, fyrir hönd Íslands ásamt fulltrúum Evrópusambandsins og Bandaríkjanna. Undirbúningur vegna aðildar Íslands að samningnum hefur farið fram í utanríkisráðuneytinu og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.

Flugfélög á Íslandi og Noregi öðlast með samningnum sama rétt og félög í aðildarríkjum Evrópusambandsins til farþega- og fraktflugs milli Evrópu og Bandaríkjanna. Er þeim heimilt að fljúga milli hvaða borga sem er í Evrópu og í Bandaríkjunum. Þá veitir samningurinn aukna möguleika á samstarfi milli flugfélaga beggja vegna Atlantshafsins svo sem til samvinnu um flugleiðir og leigu flugvéla svo og til eignarhalds evrópskra félaga í Bandaríkjunum og öfugt.

Við athöfnina lýsti Kristján L. Möller ánægju með samninginn og kvað hann mikilvægan fyrir íslenska flugrekendur sem fá með tilkomu hans auknar heimildir til flugs milli Bandaríkjanna og Evrópu.

Myndirnar tók Miriam Stackpole Dahl, upplýsingafulltrúi norsku sendinefndarinnar hjá ESB.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra undirritar loftferðasamning í Brussel.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum