Hoppa yfir valmynd
23. desember 2009 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 23. desember 2009

FUNDARGERÐ

Ár 2009, miðvikudaginn 23. desember, var haldinn fundur í mannanafnanefnd að Neshaga 16, Reykjavík. Mættar voru Kolbrún Linda Ísleifsdóttir og Ágústa Þorbergsdóttir en Baldur Sigurðsson var í símasambandi á fundinum. Neðangreind mál voru tekin fyrir:

1.         Mál nr. 104/2009        Eiginnafn:        Melkíor  (kk.)

  

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Melkíor (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Melkíors, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Melkíor (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

2.         Mál nr. 105/2009        Eiginnafn:        Ísrael  (kk.)

  

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Ísrael (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ísraels, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ísrael (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

  

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum