Hoppa yfir valmynd
30. desember 2009 Innviðaráðuneytið

Uppgjör aukaframlags Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga árið 2009

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt endurskoðaða tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun og uppgjör á 1.000 milljóna króna aukaframlagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga árið 2009.


Framlaginu er ætlað að bæta rekstrarlega stöðu viðkomandi sveitarfélaga.

Úthlutunin byggist á reglum nr. 862/2009. Við úthlutun framlagsins er tekið mið af íbúaþróun og þróun heildartekna í sveitarfélögum á tilteknu árabili, lágum meðaltekjum og útgjaldaþörf fjölkjarna sveitarfélaga.

Aukaframlagið er greitt sveitarfélögum í tvennu lagi. Í október síðastliðnum komu 750 milljónir króna til greiðslu. Uppgjörsgreiðsla framlagsins að fjárhæð 250 milljónir króna fer fram fyrir áramót.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum