Hoppa yfir valmynd
30. júní 2010 Dómsmálaráðuneytið

Breytingar á skipan sýslumannsembætta

Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur ákveðið að gera breytingar á skipan sýslumannsembætta m.a. með hliðsjón af nýsamþykktum breytingum á lögum um framkvæmdarvald ríkisins í héraði.

Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur ákveðið að gera breytingar á skipan sýslumannsembætta m.a. með hliðsjón af nýsamþykktum breytingum á lögum um framkvæmdarvald ríkisins í héraði. Með þeirri lagabreytingu var ráðherra heimilað að fela starfandi sýslumanni að gegna jafnframt öðru embætti sem losnar. 

Embætti sýslumannsins í Reykjavík

Guðmundur Sophusson, sýslumaður í Hafnarfirði, flyst í embætti sýslumanns í Reykjavík frá og með 1. nóvember nk. en  Rúnari Guðjónssyni, sýslumanni í Reykjavík, hefur verið veitt lausn frá embætti að eigin ósk frá og með 1. júlí 2010. Þuríður Árnadóttir, staðgengill sýslumannins í Reykjavík, gegnir embætti sýslumanns í Reykjavík frá 1. júlí nk. til 31. október nk.

Embætti sýslumannsins í Hafnarfirði

Guðgeir Eyjólfsson, sýslumaður í Kópavogi, mun jafnframt gegna tímabundið  embætti sýslumanns í Hafnarfirði frá og með 1. nóvember nk. til 31. október 2011.

Embætti sýslumannsins á Ísafirði

Úlfari Lúðvíkssyni,  sýslumanni á Patreksfirði, hefur verið falið að gegna jafnframt tímabundið embætti  sýslumannsins á Ísafirði frá og með 1. júlí nk. til 30. júní 2011.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum