Hoppa yfir valmynd
5. ágúst 2010 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 5. ágúst 2010

 

  

Mál nr. 66/2010                    Eiginnafn:     Kjarval

                                               Millinafn:       Kjarval

 

Hinn 5. ágúst 2010 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 66/2010:

Í máli þessu er aðallega sótt um heimild fyrir því að nota nafnið Kjarval sem eiginnafn en millinafn til vara.

Eiginnafnið Kjarval (kk.) tekur íslenskri beygingu, Kjarval – Kjarval – Kjarval – Kjarvals, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Þar sem fallist er á nafnið Kjarval sem eiginnafn er ekki þörf á að taka afstöðu til nafnsins sem millinafns.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Kjarval (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum