Hoppa yfir valmynd
27. ágúst 2010 Innviðaráðuneytið

Drög að reglugerð um flugkort til umsagnar

Drög að reglugerð um flugkort er nú til umsagnar. Þeir sem þess óska geta sent umsagnir sínar á póstfangið [email protected] til 10. september næstkomandi.

Með reglugerðadrögum þeim sem hér eru til umsagnar er innleiddur í íslenskan rétt viðauki nr. 4 við Chicago samninginn um alþjóðlegt almenningsflug ( Convention on International Civil Aviation ) en hann fjallar um flugkort.
Ísland hefur verið aðili að Chicago samningnum frá árinu 1947 og hefur ákvæðum hans verið framfylgt hér á landi. Næstkomandi haust er fyrirætluð allsherjar úttekt Alþjóðaflugmálastjórnarinnar (ICAO) á flugmálum á Íslandi og af því tilefni hefur verið ráðist í að innleiða með formlegum hætti viðauka við samninginn. Eru meðfylgjandi reglugerðardrög þáttur í þeirri innleiðingu.

Er uppsetning gerðarinnar með þeim hætti að reglugerðin sjálf saman stendur af nokkrum almennum ákvæðum en í viðauka við gerðina eru nánari efnisákvæði. Viðaukinn er hluti af reglugerðinni. Reglugerðin fjallar m.a. um þær kröfur sem gerðar eru til flugkorta, útgáfu þeirra, þær upplýsingar sem þar skulu koma fram o.s.frv.

Setning reglugerðar þessara felur ekki í efnislega breytingu á þeim kröfum sem gerðar eru til flugkorta enda hefur ákvæðum viðauka 4 við Chicago samninginn almennt verið framfylgt hér á landi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum