Hoppa yfir valmynd
2. mars 2011 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 2. mars 2011

Mál nr. 14/2011                   Eiginnafn:     Lilla

 

Hinn 2. mars 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 14/2011 en erindið barst nefndinni 15. febrúar:

Eiginnafnið Lilla (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Lillu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Lilla (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

Mál nr. 16/2011                    Eiginnafn:     Rósinkransa

 

Hinn 2. mars 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 16/2011 en erindið barst nefndinni 1. mars:

Eiginnafnið Rósinkransa (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Rósinkrönsu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Rósinkransa (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

Mál nr. 17/2011                    Eiginnafn:     Vakur

 

Hinn 2. mars 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 17/2011 en erindið barst nefndinni 1. mars:

Eiginnafnið Vakur (kk.) tekur íslenskri beygingu, Vakur, um Vakur, frá Vakri, til Vakurs, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Vakur (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

   

Mál nr. 18/2011                    Eiginnafn:     Henrika

 

Hinn 2. mars 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 18/2011 en erindið barst nefndinni 1. mars:

Eiginnafnið Henrika (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Henriku, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Henrika (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

Mál nr. 19/2011                    Eiginnafn:     Eivin

 

Hinn 2. mars 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 19/2011 en erindið barst nefndinni þann sama dag:

Eiginnafnið Eivin (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, til Eivins, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Eivin (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum