Hoppa yfir valmynd
3. mars 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Allt að 900 sumarstörf fyrir námsmenn og atvinnuleitendur

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra um átak til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn og atvinnuleitendur næsta sumar líkt og gert var í fyrra. Áætlað er að verja allt að 370 milljónum króna til verkefnisins.

Vinnumálastofnun mun stýra átakinu sem efnt er til í samvinnu við stofnanir ríkisins og sveitarfélög. Stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs hefur samþykkt að verja allt að 250 milljónum króna til verkefnisins og ríkisstjórnin að veita 116 milljóna króna mótframlag úr ríkissjóði. Veittir verða styrkir úr Atvinnuleysistryggingasjóði sem nema að hámarki fjárhæð atvinnuleysisbóta fyrir hvern einstakling. Mótframlagi ríkisins er ætlað að mæta viðbótarkostnaði stofnana þess svo unnt sé að greiða laun samkvæmt kjarasamningum en sveitarfélögin munu sjálf standa straum af þessum viðbótarkostnaði.

Af framlagi ríkisins eru um 10 milljónir króna ætlaðar til verkefna sem hljóta styrki úr Nýsköpunarsjóði námsmanna og eru á vegum ráðuneyta eða opinberra stofnana. Mennta- og menningarmálaráðuneytið annast umsýslu og kynningu vegna þessara verkefna.

Undirbúningur er þegar hafinn að átakinu og hefur Vinnumálastofnun sent stofnunum ríkisins og sveitarfélögum orðsendingu um að tilgreina þau störf og verkefni sem fallið geta undir átaksverkefnið. Vonir standa til að með átakinu verði til 850–900 tímabundin störf í sumar fyrir námsmenn og atvinnuleitendur.

Stefnt er að því að ljúka undirbúningi átaksins tímanlega í vor þannig að unnt verði að auglýsa störfin í byrjun apríl svo að í seinni hluta apríl liggi fyrir fjöldi starfa hjá hverri stofnun og sveitarfélagi og að þau geti þá gengið frá ráðningum. Störfin verða auglýst á heimasíðu Vinnumálastofnunar og ef til vill víðar og geta atvinnuleitendur sem eru á skrá hjá stofnuninni og námsmenn sótt um með rafrænum hætti líkt og í fyrra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum