Hoppa yfir valmynd
3. júní 2011 Innviðaráðuneytið

Rafræn innkaup á alþjóðavísu

3.6.2011

Vikuna 24-26. maí var haldin ráðstefna PEPPOL í Stokkhólmi. PEPPOL verkefnið snýst um gangsetningu rafrænna innkaupa um alla Evrópu. Enn fjölgar löndunum sem geta sent rafræna reikninga sín á milli.

Nú síðast bættist Noregur í hópinn þegar Háskólasjúkrahúsið í Bergen tók við rafrænum reikningi frá birgja sínum samkvæmt START aðgangsleiðinni. Framvegis ætla Norðmenn sér að styðjast við innviði PEPPOL í rafrænum viðskiptum. Sjá frétt:

Þá hefur British Telecom sent reikninga til framkvæmdastjórnar ESB í gegnum PEPPOL innviðina. Framkvæmdastjórnin styðst við opinn verkvang sem nefnist e-Prior og er ætlaður öllum þeim sem vilja eiga rafræn viðskipti við ESB. Sjá frétt:

Vefsíða PEPPOL er: http://www.peppol.eu/

Þar er að finna nánari fréttir af PEPPOL ráðstefnunni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum