Hoppa yfir valmynd
8. júní 2011 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á nautgripa-, svína- og alifuglakjöti.

Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og með vísan til reglugerðar nr. 558/2011, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir innflutning á nautgripa-, svína- og alifuglakjöti, fyrir tímabilið 1. júlí 2011 til 30. júní 2012:

 

 

Vara

Tímabil Vörumagn Verðtollur
      kg %
Tollskrárnr.: Nautgripkjöt - Vöruliðir 0202 og 0210:   95.000  
0202.3xxx Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst 01.07.11- 30.06.12 114,56
  Kjöt af dýrum af nautgripakyni, saltað,      
  þurrkað eða reykt:      
0210.2001 Beinlaust 01.07.11 - 30.06.12 114,56
         
Tollskrárnr.: Svínakjöt - vöruliðir 0203 og 0210:   64.000  
0203.29xx Svínakjöt, fryst: 01.07.11 - 30.06.12 172,16
Úr tollskrárnr.: Svínakjöt, saltað, þurrkað eða reykt:      
0210.1200 Slög og sneiðar af þeim, beinlaust 01.07.11 - 30.06.12 172,16
Tollskrárnr:        
0210.1901 Reykt - beinlaust 01.07.11 - 30.06.12 172,16
Úr tollskrárnr.:      
0210.1909 Annars - beinlaust 01.07.11 - 30.06.12 172,16
         
  Kjöt af alifuglum - vöruliður 0207:   59.000  
Tollskrárnr.: Af hænsnum af tegundinni Gallus domisticus:    
0207.1xxx Af hænsnum, fryst 01.07.11 - 30.06.12 149,44
  Af kalkúnum:      
0207.2xxx Af kalkúnum, fryst 01.07.11 - 30.06.12 159,04
  Af öndum, gæsum eða perluhænsnum:      
0207.3xxx Af öndum, gæsum eða perluhænsnum, fryst 01.07.11 - 30.06.12 159,04
         
Tollskrárnr.: Annað kjöt og ætir hlutar af dýrum, fryst       12.000     
0208.9001 Dúfur 01.07.11 - 30.06.12 114,56
0208.9002 Fasanar 01.07.11 - 30.06.12 114,56
0208.9004 Dádýr 01.07.11 - 30.06.12 114,56

Úr tollskrárnr.:

     
0208.9019 Annars - Lynghænur og strútar, fryst 01.07.11 - 30.06.12 114,56

 

Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt reglugerð nr. 509/2004, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar. Tilboð skulu ráða úthlutun.

 

Skriflegar umsóknir skulu berast  til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, að Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 15:00 mánudaginn 20. júní n.k.

  

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 8 . júní 2011.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum