Hoppa yfir valmynd
22. júní 2011 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 22. júní 2011

Mál nr. 48/2011                  Eiginnafn:     Erin

 

Hinn 22. júní 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 48/2011 en erindið barst nefndinni 3. júní:

Eiginnafnið Erin (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Erinar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Erin (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

Mál nr. 50/2011                    Eiginnafn:     Lyngar

 

Hinn 22. júní 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 50/2011 en erindið barst nefndinni 20. júní:

Eiginnafnið Lyngar (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Lyngars, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Lyngar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 


 

Mál nr. 58/2007B                  Eiginnafn:   Cesil

 

Hinn 22. júní 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 58/2007B:

xxx sendi tölvubréf 30. maí sl. þar sem xxx fer fram á endurskoðun á úrskurði mannanafnanefndar í máli nr. 58/2007 þar sem hafnað var beiðni um eiginnafnið Cesil. xxx bendir á að systurdóttir xxx hafi fengið nafnið Cecil sama ár. Nefndin hefur kannað að það barn fæddist í Austurríki og fær því skráningu þar samkvæmt þarlendum lögum.

Um rétt aðila máls til endurupptöku fer eftir ákvæðum 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eða óskráðum reglum stjórnsýsluréttar um endurupptöku.

Ekkert er fram komið sem bendir til þess að úrskurður mannanafnanefndar í umræddu máli hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik né að hann hafi byggst á atvikum sem hafa breyst verulega frá því að ákvörðun var tekin. Skilyrði til endurupptöku málsins, sbr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eru því ekki fyrir hendi.

Þegar 24. gr. stjórnsýslulaga sleppir kann mannanafnanefnd eftir atvikum að vera rétt og heimilt að endurupptaka mál á ólögfestum grundvelli. Skylda til slíks veltur þó, að mati nefndarinnar, á því að rökstuddar vísbendingar séu um að á úrskurði hennar séu verulegir annmarkar að lögum. Ekkert er fram komið um að slíkur ágalli hafi verið á fyrri úrskurði nefndarinnar.

  

Úrskurðarorð:

Með vísan til þessa er beiðni um endurupptöku máls nr. 58/2007 hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum