Hoppa yfir valmynd
6. júlí 2011 Innviðaráðuneytið

Innanríkisráðherra á ferð um Vestfirði

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra er ásamt fylgdarliði frá ráðuneytinu og Vegagerðinni  um þessar mundir á ferð um Vestfirði einkum til að kynna sér stöðu vegamála í fjórðungnum. Ráðherra hittir sveitarstjórnarfólk og starfsmenn Vegagerðar og hefur einnig rætt við lögreglumenn.

Ráðherra og vegamálastjóri ásamt vegagerðarmönnum á Hólmavík.
Ráðherra og vegamálastjóri ásamt vegagerðarmönnum á Hólmavík.

Innanríkisráðherra á fundi með bæjarstjórum Ísafjarðar og Bolungarvíkur.Ráðherra átti í morgun fund með bæjarstjórum Bolungarvíkur og Ísafjarðarbæjar ásamt nokkrum bæjarfulltrúum. Fundinn sátu einnig ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytis og vegamálastjóri. Rætt var um það sem framundan er í vegaframkvæmdum á Vestfjörðum og fram kom hjá sveitarstjórnarmönnum að samstaða væri um það í Fjórðungssambandi Vestfirðinga að áhersla skyldi lögð á vegaframkvæmdir í Barðastrandarsýslu og síðan framkvæmdir við Dýrafjarðargöng og Dynjandisheiði.

Á Hólmavík hitti ráðherra starfsmenn miðstöðvar Vegagerðarinnar og heimsótti lögreglustöðina þar svo og lögreglustöðina á Ísafirði og starfsstöð Siglingastofnunar þar. Í dag heldur ráðherra ásamt fylgdarliði suður eftir til Patreksfjarðar og þar er ráðgerður fundur með sveitarstjórnarmönnum og á morgun verður rætt við fulltrúa í stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga.

Rádherra í starfsstöð Vegagerðarinnar á Ísafirði.
Rádherra í starfsstöð Vegagerðarinnar á Ísafirði.
Innanríkisráðherra á fundi hjá bæjarstjórum Ísafjarðar og Bolungarvíkur.
Innanríkisráðherra á fundi hjá bæjarstjórum Ísafjarðar og Bolungarvíkur.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum