Hoppa yfir valmynd
14. júlí 2011 Innviðaráðuneytið

Reynt að hleypa umferð á brúna yfir Múlakvísl fyrir miðja næstu viku

Brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar sem nú vinna hörðum höndum að því að ljúka við smíði brúar yfir Múlakvísl hafa ekki slegið slöku við. Nú er búst við að unnt verði að hleypa umferð á brúna fyrir miðja næstu viku.

Brúarsmíðin við Múlakvísl gengur vel
Brúarsmíðin við Múlakvísl gengur vel

Búið er að koma upp okum á undirstöður brúarinnar og leggja svo til alla stálbita á þau utan. Í lok dags verður allt trégólfið komið upp á brúna. Þá hefst einnig í dag vinna við að setja upp vegrið á brúna og hafist verður handa við að legga slitgólf ofan á trégólfið. Jafnframt er unnið að stífingum og festingum á brúnni.

Stefnt er að því að hleypa vatninu undir nýju brúna aðfaranótt laugardags. Þar sem mikil dægursveifla er í vatnsmagninu er hægast um vik að hleypa vatninu undir þegar það er minnst undir morgun.

Unnið er af krafti við vegtengingu brúarinnar að vestanverðu og koma þar upp garði með grjótvörn við brúarendann. Verið er að ýta upp efni úr ánni að austanverðu, efni sem fljótið ber með sér en það mun nýtast í varnargarðana og vegagerðina. Byggður verður varnargarður að austanverðu til að verja vegtenginguna við brúna þar.

Miðað við þennan framgang má búast við að hægt verði að hleypa umferð á bráðbrigðabrúna heldur fyrr en um miðja næstu viku eins og áætlað var. Fljótið ræður þó miklu um hvernig gengur að koma upp varnargarði að austanverðu og tengja brúna þeim megin.

Bílar og farþegar hafa verið ferjaðir yfir Múlakvísl meðan vegasambandið er rofið.

Á Fjallabaksvegi nyrðri hefur verið bætt við mörgum umferðarmerkjum en alls verða sett upp um 70 skilti. Flest eru aðvörun um beygjur og um leiðbeinandi hraða í beygjum en nokkuð hefur verið um að ökumenn aki of hratt í beygjur. Einnig hafa verið sett upp hraðamerki en hámarkshraði er 60 km/klst. Leiðbeinandi hraði við vöð er 5 km/klst. Sama verður gert í dag á Dómadalsleið og verður verkinu lokið í síðasta lagi á morgun.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum