Hoppa yfir valmynd
12. september 2011 Matvælaráðuneytið

Fundað í Washington um hvalveiðimál.

 

Nr. 48/2011

Fundað í Washington um hvalveiðimál.

Tómas H. Heiðar, aðalfulltrúi Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu, og Hjálmar W. Hannesson, sendiherra Íslands í Washington, áttu á föstudag fundi í Washington með bandaríska utanríkisráðuneytinu og starfsmönnum beggja öldungadeildarþingmanna Alaska, Lisu Murkowski og Mark Begich. Markmiðið með fundunum var að bregðast við útnefningu viðskiptaráðherra Bandaríkjanna á Íslandi samkvæmt svonefndu Pelly-ákvæði vegna hvalveiða í júlí sl. og upplýsa bandarísk stjórnvöld og þingmenn um stefnu Íslands í hvalveiðimálum. Innan skamms mun Bandaríkjaforseti taka afstöðu til útnefningarbréfs viðskiptaráðherrans, en þar var lagt til að gripið yrði til diplómatískra aðgerða gegn Íslandi.

Á fundunum var lögð á það áhersla af Íslands hálfu að hvalveiðar Íslendinga væru fyllilega löglegar og alþjóðleg viðskipti þeirra með hvalaafurðir í fullu samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. Jafnframt var undirstrikað að veiðar á hrefnu og langreyði væru sjálfbærar og byggðar á traustum vísindalegum grundvelli. Í ljósi alls þessa var lýst undrun á útnefningu Íslands samkvæmt Pelly-ákvæðinu, enda væri hvorki lagalegur né vísindalegur grundvöllur fyrir henni og þeim aðgerðum sem lagðar hefðu verið til gegn Íslandi. 

Fulltrúar Íslands bentu á að bandarísk stjórnvöld væru ekki sjálfum sér samkvæm þegar þau gagnrýndu annars vegar veiðar Íslendinga á langreyði en leituðu hins vegar eftir stuðningi Íslands og annarra aðildarríkja Alþjóðahvalveiðiráðsins við veiðar Bandaríkjamanna á norðhval frá Alaska. Fyrir liggur að langreyðarveiðar Íslendinga eru sjálfbærar engu síður en norðhvalsveiðar Bandaríkjamanna. Þess ber að geta að ákvörðun verður tekin um kvóta Bandaríkjanna á norðhval til fimm ára á ársfundi ráðsins í Panama á næsta ári og þurfa Bandaríkin stuðning 3/4 hluta aðildarríkjanna til að kvótinn verði samþykktur. 

Fylgiskjal (á ensku): Pelly Amendment Certification of Iceland by the U.S. Secretary of Commerce is Without any Legal or Scientific Basis

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum