Hoppa yfir valmynd
16. september 2011 Matvælaráðuneytið

Enginn lagalegur eða vísindalegur grundvöllur fyrir aðgerðum Bandaríkjanna vegna hvalveiða Íslendinga.

 Nr. 50/2011

 

 Enginn lagalegur eða vísindalegur grundvöllur fyrir aðgerðum Bandaríkjanna vegna hvalveiða Íslendinga.

 

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir hvorki lagalegan né vísindalegan grundvöll fyrir aðgerðum Bandaríkjanna vegna hvalveiða Íslendinga. Viðskiptaráðherra Bandaríkjanna útnefndi Ísland samkvæmt svonefndu Pelly-ákvæði í júlí sl. og lagði til við Bandaríkjaforseta að gripið yrði til diplómatískra aðgerða gegn Íslandi vegna hvalveiða Íslendinga. Forsetinn ákvað í gær að fara að tillögu viðskiptaráðherrans og tilkynnti jafnframt að ekki yrði gripið til neinna viðskiptalegra aðgerða.  

Fyrir liggur að hvalveiðar Íslendinga eru löglegar og alþjóðleg viðskipti þeirra með hvalaafurðir eru í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. Jafnframt eru veiðar Íslendinga á hrefnu og langreyði sjálfbærar og byggðar á traustum vísindalegum grundvelli.  

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir bandarísk stjórnvöld ekki vera sjálfum sér samkvæm þegar þau gagnrýna annars vegar veiðar Íslendinga á langreyði en leiti hins vegar eftir stuðningi Íslands og annarra aðildarríkja Alþjóðahvalveiðiráðsins við veiðar Bandaríkjamanna á norðhval frá Alaska.  

Vísindaleg gögn sýni að langreyðarveiðar Íslendinga séu sjálfbærar engu síður en norðhvalsveiðar Bandaríkjamanna. Þess ber að geta að ákvörðun verður tekin um kvóta Bandaríkjanna á norðhval til fimm ára á ársfundi ráðsins í Panama á næsta ári og þurfa Bandaríkin stuðning 3/4 hluta aðildarríkjanna til að kvótinn verði samþykktur.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum