Hoppa yfir valmynd
19. september 2011 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Starfshópur skipaður vegna alvarlegrar stöðu svartfuglastofna

Lundar. Mynd: Yann Kolbeinsson.
Lundar

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur skipað starfshóp sem ætlað er að gera tillögur um aðgerðir sem stuðlað geti að endurreisn svartfuglastofna hér við land. Þá skal hópurinn gera tillögur um hvernig megi styrkja verndun og sjálfbæra nýtingu stofnanna.

Starfshópurinn er skipaður vegna alvarlegrar stöðu svartfuglastofna hérlendis. Honum er ætlað að fjalla sérstaklega um veiðar og nýtingu svartfugls og hvort breytingar á lögum eða reglum er varða nýtingu á svartfugli, þar með talinni eggjatöku, geti komið að gagni við endurreisn svartfuglastofna og þá með hvaða hætti það megi verða.  

Veruleg fækkun hefur verið í nokkrum stofnum sjófugla undanfarin misseri og segja má að hrun hafi verið í lundastofninum. Lélegur varpárangur hefur verið hjá lunda, sérstaklega á sunnanverðu landinu sl. 4-5 ár og í fyrra varð algjör viðkomubrestur í lundavarpi á Suðurlandi. Stuttnefju hefur fækkað um allt land og álku og langvíu um sunnan- og vestanvert landið, en stofnar þeirra hafa haldið nokkuð í horfinu um norðanvert landið.

Orsakir fækkunar og viðkomubrests sjófugla virðast að mestu leyti vera fæðuskortur, en fuglarnir lifa einkum á sandsíli og loðnu. Hrun varð á sandsílastofninum árið 2000 og hefur hann ekki náð sér á strik síðan en loðnustofninn hefur verið í lægð sl. áratug. Veiðar á sjófuglum hafa ekki verið taldar hafa veruleg áhrif á fækkun stofna þeirra, en eru hins vegar sá þáttur sem mest er hægt að hafa áhrif á til að milda áfallið.

Í starfshópnum sitja:

Sigurður Á. Þráinsson, formaður, umhverfisráðuneyti,
Menja von Schmalensee, skipuð án tilnefningar,
Guðbjörg H. Jóhannesdóttir, tilnefnd af Bændasamtökum Íslands,
Guðmundur A. Guðmundsson tilnefndur af Náttúrufræðistofnun Íslands,
Steinar Rafn Beck Baldursson tilnefndur af Umhverfisstofnun
Sæunn Marinósdóttir, tilnefnd af Skotveiðifélagi Íslands.

Hópnum er ætlað að skila tillögum sínum til umhverfisráðuneytisins eigi síðar en 31. október 2011.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum