Hoppa yfir valmynd
23. september 2011 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Kynningarfundur - Niðurstöður úr rannsókninni Ungt fólk 2011

Mennta- og menningarmálaráðuneyti boðar til kynningarfundar, þriðjudaginn 27. september 2011 í KFUM og KFUK húsinu við Holtaveg 28, Reykjavík.

UNgt fólk 2011
Ungt fólk 2011
Niðurstöður úr rannsókninni Ungt fólk 2011 5., 6. og 7. bekk grunnskóla

Mennta- og menningarmálaráðuneyti boðar til kynningarfundar, þriðjudaginn 27. september 2011 í KFUM og KFUK húsinu við Holtaveg 28, Reykjavík, þar sem starfsfólk Rannsóknar og greiningar þau Hrefna Pálsdóttir, lýðheilsufræðingur, Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor, Margrét Lilja Guðmundsdóttir, félagsfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu, Birna Björnsdóttir, lýðheilsufræðingur, dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, lektor við HR og Jón Sigfússon, framkvæmdastjóri munu kynna helstu niðurstöður rannsóknarinnar „Ungt fólk 2011 í 5., 6., og 7. bekk grunnskóla“ er viðkemur líðan, menntun, menningu, tómstundum, íþróttaiðkun og framtíðarsýn íslenskra barna. Rannsóknin var lögð fyrir nemendur í öllum grunnskólum landsins í febrúar 2011.

Kynningarfundurinn verður haldinn þriðjudaginn 27. september nk. í KFUM og KFUK húsinu við Holtaveg 28, Reykjavík, og hefst kl. 13:30. Gert er ráð fyrir að fundinum ljúki eigi síðar en kl. 16:00.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum