Hoppa yfir valmynd
23. september 2011 Matvælaráðuneytið

Umsóknarfrestur í lánatryggingasjóð kvenna - Svanna - er til 19. október.

Lánatryggingasjóður kvenna er er liður í viðleitni stjórnvalda til að efla atvinnulíf og hvetja til
nýsköpunar á Íslandi. Sjóðurinn veitir lánatryggingar til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir og er hann í samstarfi við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu. Sjóðurinn er í eigu iðnaðarráðuneytis, velferðarráðuneytis og Reykjavíkurborgar

Stjórn sjóðsins skipa þau Steinunn Valdís Óskarsdóttir sem jafnframt er formaður
stjórnar og fulltrúi velferðarráðherra, Jón Steindór Valdimarsson sem er fulltrúi iðnaðarráðherra og Sigrún Elsa Smáradóttir fulltrúi Reykjavíkurborgar.

Verkefnið er til fjögurra ára og lýkur þann 31. desember 2014. 

Hægt verður að sækja um lánatryggingar á heimasíðunni frá og með föstudeginum
23.september og er umsóknarfrestur til og með 19. október í þessari fyrstu
umsóknarlotu.

Svanni veitir lánatryggingar til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir og er í samstarfi
við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu. Sjóðurinn veitir helming ábyrgðar á móti
banka.

Eingöngu verkefni/fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um tryggingu og gerð er krafa um að í verkefninu felist nýsköpun/nýnæmi að einhverju marki. Einnig er krafa um að líkur séu verulegar á
að verkefnið/fyrirtækið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna. Hægt er að
sækja um lánatryggingu vegna eftirtalinna þátta:

  • Stofnkostnaðar
  • Markaðskostnaðar
  • Vöruþróunar
  • Nýrra leiða í framleiðslu eða framsetningu vöru/þjónustu.

Lánsfjárhæðir skulu ekki vera undir tveimur milljónum króna og að jafnaði skal ekki afgreiða
lán yfir 10 milljónir króna en stjórn er þó heimilt að gera undantekningar með hliðsjón af eðli og tegund umsókna.

Umsóknir

Sótt er um á heimasíðu verkefnisins www.svanni.is og eru umsóknir rafrænar. Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um umsækjanda, greinargóð lýsing á verkefni/fyrirtæki, markmiðum þess og ávinningi, hverjir koma að umsókninni, samstarfsaðilar, viðskiptaáætlun og lýsing á fjármögnun og staðfesting fjármögnunaraðila ef þeir eru til staðar.

Umsóknir eru metnar út frá lýsingu á viðskiptahugmynd, nýnæmi/nýsköpun hugmyndar, atvinnusköpun kvenna, verðmætasköpun/arðsemi, samkeppni, viðskiptaáætlun (fjárhags-, markaðs og framkvæmdaráætlun), fjármögnun, áhættumati og fjárhagsstöðu umsækjanda.

Ráðgjöf og eftirfylgni

Mikilvægur þáttur verkefnisins er ráðgjöf og handleiðsla en er lán og ábyrgð er samþykkt
fer af stað ferli handleiðslu og ráðgjafar. Þannig skuldbindur lántaki sig til að fá ráðgjöf/handleiðslu um útfærslu hugmyndar sinnar. Ennfremur skal lántaki skila ársskýrslu verkefnis/fyrirtækis fyrir lok apríl hvert ár sem tryggingin er í gildi.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Guðmundsdóttir, starfsmaður sjóðsins í síma 582-4914 og í netfangið svanni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum