Hoppa yfir valmynd
5. október 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ný og endurbætt ábendingalína um ólöglegt og óviðeigandi efni á Netinu

Barnaheill- Save the Children á Íslandi í samstarfi við SAFT og embætti Ríkislögreglustjóra hafa tekið í notkun nýjan ábendingahnapp um ólöglegt og óviðeigandi efni tengt börnum á Netinu.

Ábendingahnappur SAFT
Ábendingahnappur SAFT
Barnaheill- Save the Children

á Íslandi í samstarfi við SAFT (Samfélag, fjölskylda og tækni) og embætti Ríkislögreglustjóra hafa tekið í notkun nýjan ábendingahnapp um ólöglegt og óviðeigandi efni tengt börnum á Netinu. Með því að smella á hnappinn, getur almenningur tilkynnt um slíkt efni. Nær 4000 ábendingar um efni þar sem börn eru sýnd á kynferðilslegan hátt eða beitta kynferðisofbeldi hafa borist frá því að Barnaheill – Save the Children á Íslandi opnuðu ábendingarlínu árið 2001.

Efni er ólöglegt þegar börn eru sýnd á kynferðislegan hátt, beitt kynferðislegu ofbeldi, um mansal á börnum er að ræða eða einelti á Neti, þegar klámefni er aðgengilegt börnum, efni þar sem fullorðnir misnota börn á kynferðislegan hátt á ferðum sínum erlendis eða annað ofbeldisefni á Netinu. Allar ábendingar um ólöglegt efni fara til embættis ríkislögreglustjóra, þar sem þær eru rannsakaðar og gripið til viðeigandi aðgerða. Þá fara ábendingar um óviðeigandi efni, s.s. meiðyrði, hótanir eða haturstal um ákveðna hópa, til netþjónustuaðila til skoðunar. Þeir sem vilja fá hnappinn til að setja á sínar vefsíður, geta snúið sér til Barnaheilla – Save the Children á Íslandi.
Ábendingalínan er styrkt af Safer Internet áætlun Evrópusambandsins. Eitt af megin hlutverkum slíkra lína er að auðvelda almenningi að koma ábendingum um ólöglegt athæfi og efni á Netinu til yfirvalda og þeirra sem bera ábyrgð á vefnum þar sem efnið er hýst. Sérstök áhersla er á öryggi barna á Netinu.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi, Heimili og skóli – landssamtök foreldra og embætti landlæknis (áður Lýðheilsustöð) hafa einnig skrifað undir samning við innanríkis- og menntamálaráðuneyti um stuðning við rekstur SAFT verkefnisins á Íslandi til ársloka 2012, en það er hluti af Netöryggisáætlun Evrópusambandsins. SAFT – Netöryggismiðstöð á Íslandi sinnir fræðslu um netöryggi og hefur gefið út margvíslegt efni fyrir börn, foreldra og skóla í þeim tilgangi. Kannanir sýna fram á góðan árangur SAFT verkefnisins á Íslandi sem og aukna vitundarvakningu um Netið.

Samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskum lögum eiga börn rétt á vernd gegn kynferðislegu ofbeldi og gegn því að vera neydd til vændis eða þátttöku í kynlífsiðnaði. Börn eiga enn fremur rétt á að vera vernduð fyrir efni sem getur skaðað velferð þeirra. Öll myndbirting af börnum, þar sem þau eru sýnd á kynferðislegan eða klámfenginn hátt, er brot á rétti barna. Framleiðsla, varsla, dreifing og skoðun á slíku efni er ólöglegt athæfi. Aðgangur barna að slíku efni á Netinu er líka brot á rétti þeirra.
Á undanförnum árum hafa Barnaheillum – Save the Children á Íslandi í auknum mæli borist ábendingar um myndefni af íslenskum börnum og unglingum á samskiptasíðum og svokölluðum félagsnetsíðum, þar sem hver og einn getur sett inn efni og myndir nafnlaust. Það er mikilvægt að brýna fyrir börnum og unglingum að leyfa aldrei að teknar séu af þeim myndir, sem þau vilja ekki að rati inn á netið, og að foreldrar og aðrir sem vinna með börnum séu meðvituð um þessa hættu.

Barnaheill- Save the Children á Íslandi eru í alþjóðasamtökum ábendingalína, INHOPE, þar sem eru um 40 ábendingalínur. Sérhver ábendingalína er rekin í samstarfi við lögreglu og netþjónustuaðila í hverju landi. Hver ábendingalína skráir reglulega allar tölulegar upplýsingar í gagnagrunn INHOPE. Þannig er hægt að fylgjast með fjölda ábendinga og hvernig miðar í baráttunni gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Netinu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum