Hoppa yfir valmynd
28. október 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til sveitarfélaga vegna aukinnar þjónustu við langveik börn og börn með ADHD

Velferðarráðuneyti auglýsir eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki til verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest.

Velferðarráðuneyti auglýsir eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki til verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest. Styrkir verða veittir á grundvelli samstarfssamnings félags- og tryggingamálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem var undirritaður 4. desember 2009.

Sveitarfélög geta sótt um styrki vegna verkefna á eigin vegum eða sem unnin eru í samstarfi við einstaklinga eða félagasamtök. Nánari upplýsingar á vef velferðarráðuneytis.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum