Hoppa yfir valmynd
31. október 2011 Forsætisráðuneytið

Hnattvæðingarþing og fundur forsætisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltríkja í dag

Forsætisráðherrar Norðurlandanna
Forsætisráðherrar Norðurlandanna

Á hnattvæðingarþingi sem haldið var í Kaupmannahöfn í dag, fjölluðu forsætisráðherrar Norðurlandanna um stöðu mála samkvæmt norrænu hnattvæðingarvoginni, svo og möguleika á sérstökum samstarfsverkefnum tengdum grænum hagvexti. Vinnuhópur var skipaður af forsætisráðherrunum sumarið 2010 til að vinna að tillögum um slík verkefni og voru skýrsla hópsins og tillögur um samstarfsverkefni til umræðu á hnattvæðingarþinginu.

Á þinginu var jafnframt fjallað um fjármögnun og aðkomu stjórnvalda í tengslum við grænan hagvöxt og flutti forseti Norræna fjárfestingarbankans, Johnny Åkerholm, erindi um það málefni.

Fundur ráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna var haldinn síðdegis í dag.  Var þar fjallað um tillögur um nánara samstarf ríkjanna átta, kynnt var áætlun dönsku formennskunnar í Evrópusambandinu fyrri helming ársins 2012 og fjallað var um efnahagsástandið í Evrópu og á alþjóðavettvangi.  Einnig var rætt um alþjóðamál, meðal annars stöðu mála í ríkjunum við Miðjarðarhaf og í Norður-Afríku, umsókn Palestínu um aðild að Sameinuðu þjóðunum og stöðu mála í Líbýu.

Forsætisráðherrar Norðurlanda og Eystarsaltsríkja               Á myndinni eru forsætisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum