Hoppa yfir valmynd
3. nóvember 2011 Matvælaráðuneytið

11. nóvember er lokadagur til að skila inn umsögnum um rammaáætlun.

Með rammaáætlun er mörkuð stefna um það hvaða virkjunarkostir komi til greina og hvaða svæði beri að friða. Frá 19. ágúst hafa drög að rammaáætlun verið til umsagnar hjá þjóðinni og rennur umsagnarfrestur út á miðnætti föstudaginn 11. nóvember. Allar innkomnar
umsagnir má sjá á vefsvæðinu rammaaaetlun.is.

Opnu 12 vikna samráðs og kynningarferli um drög að þingsályktun iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra um rammaáætlun lýkur á miðnætti föstudaginn 11. nóvember. Með rammaáætlun er mörkuð stefna um það hvaða virkjunarkostir komi til greina og hvaða svæði beri að friða og er markmiðið að ná framtíðarsýn í verndunar- og virkjanamálum og almennri sátt í þjóðfélaginu.

Umsagnir eru sendar inn í gegnum vefsíðuna rammaaaetlun.is og þar má jafnframt sjá allar innkomnar umsagnir og viðamiklar ítarupplýsingar s em tengjast vinnunni á bak við rammaáætlunina sem staðið hefur yfir allt frá árinu 1999.

Skoða umsagnir                  

Senda inn umsögn        
    



 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum