Hoppa yfir valmynd
3. nóvember 2011 Matvælaráðuneytið

Mentor hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands 2011 ... nú er komið að Svíum að taka upp íslenskar nýjungar í skólastarfi!

Þekkingarfyrirtækið Mentor hlaut í vikunni Nýsköpunarverðlaun Íslands 2011. Fyrirtækið hefur í góð 20 ár þróað
upplýsingakerfi fyrir skóla og heimili sem heldur utan um námsframvindu nemenda. Kjarninn í  hugmyndafræði Mentors felst í  þeirri hugsun að „allir nemendur eigi að ná settum markmiðum“.

Mentor er í fremstu röð á Norðurlöndum á sviði upplýsingakerfa fyrir skólasamfélagið. Hlutverk fyrirtækisins er að veita skólum lausnir, þekkingu og þjónustu til aukins árangurs. Sérstaða Mentors liggur í öflugum stuðningi við fjölbreytt námsmat og áætlanagerð en kennarar geta með einföldum hætti fylgst með námsframvindu nemenda, gert einstaklingsáætlanir og unnið námsmat í kerfinu og birt nemendum og foreldrum. Alls starfa 55 starfsmenn hjá fyrirtækinu í fimm löndum, þar af eru 25 staðsettir á Íslandi. Fyrirtækið þjónustar í dag rúmlega 1000 skóla.

Árið 2007 sameinaðist Mentor sænska fyrirtækinu P.O.D.B. Í Svíþjóð starfa 20 manns en í ár voru auk þess opnaðar starfstöðvar í Sviss, Þýskalandi og Bretlandi. Mentor undirbýr nú öfluga markaðssókn á breska markaðinn en
InfoMentor Ltd. var stofnað í upphafi ársins 2011 með samstarfsaðila Mentors í Bretlandi, WebBased. Fyrirtækin vinna nú að því að sameina það besta úr kerfum WebBased og Mentors. Framundan er þróun eininga sem auka enn frekar möguleika á samskiptum við nemendur og foreldra. Sameinuð lausn Mentors og WebBased mun verða í fararbroddi á sínu sviði í Evrópu.

Á þessu ári hefur Mentor unnið að því að innleiða kerfið í fyrsta sinn í framhaldsskólum í Svíþjóð en auk þess er Mentor einnig með kerfi fyrir leikskóla. Fyrstu íþróttafélögin á Íslandi hafa tekið Mentor í notkun sem hefur verið vel tekið meðal foreldra, enda er það aukin þjónusta að hafa upplýsingar um skóla og íþróttaiðkun á einum stað inn á fjölskylduvef Mentors. „Það eru forréttindi að fá að vinna með fólki frá mörgum löndum sem hefur það sameiginlegt að hafa ástríðu fyrir menntun", segir Vilborg Einarsdóttir framkvæmdastjóri Mentors. Vilborg segir styrki frá Tækniþróunarsjóði hafa skipt sköpum fyrir fyrirtækið þar sem um 60% útgjalda þess séu vegna rannsókna og þróunar. „Ég á erfitt með að sjá að við hefðum náð að kljúfa þennan mikla þróunarkostnað án stuðnings frá Tækniþróunarsjóði", segir Vilborg.

Mentor er í eigu frumkvöðla fyrirtækisins, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Frumtaks. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum