Hoppa yfir valmynd
3. nóvember 2011 Matvælaráðuneytið

Tillögur stýrihóps um orkustefnu fyrir Ísland afhentar iðnaðarráðherra

Orkustefnunefndin
Orkustefnunefndin

Iðnaðarráðherra skipaði í ágúst 2009 stýrihóp um mótun heildstæðrar orkustefnu fyrir Ísland. Orkustefnunni er ætlað að vera grundvöllur og viðmið ákvarðana er varða orkumál og skulu allar ákvarðanir stjórnvalda vera í sem bestu samræmi við stefnuna.

Stýrihópurinn skilaði í dag tillögum sínum til Katrínar Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra. Kjarninn í stefnunni er „Að orkubúskap Íslands verði hagað með sjálfbærum hætti, samfélaginu og almenningi til hagsbóta“. Er hér vísað í hinar þrjár stoðir sjálfbærni, þ.e.  verndun umhverfis, samfélagslega sátt, og hagræna sjálfbærni til lengri tíma litið.

Meginmarkmið orkustefnunnar kristallast í eftirfarandi þáttum:

Við nýtingu orkuauðlinda verði borin virðing fyrir umhverfi, náttúru og sérkennum
landsins.

Orkunýting sé valin af kostgæfni með hámarks arðsemi að leiðarljósi. Mikilvægt er að orkuþörf almennings og almenns atvinnulífs sé tryggð með öruggum hætti til lengri og skemmri tíma. Þegar er búið að virkja um helming af nýtanlegri raforkugetu í vatnsafli og jarðvarma og því mikilvægt að frekari nýting sé valin af kostgæfni með hámarks arðsemi og langtímahagsmuni heildarinnar að leiðarljósi.

Þjóðin njóti arðs af sameiginlegum orkuauðlindum. Brýnt er að mótuð verði stefna um skattlagningu orkuauðlinda og unninnar orku sem er ein af skilaleiðum arðs til þjóðarinnar.

Komið verði á fót sérstökum auðlindasjóði. Sjóðurinn bjóði út nýtingarsamninga til tiltekins hóflegs tíma í senn, t.d. 25-30 ára eða eftir eðli hvers virkjunarkosts að teknu tilliti til upphafsfjárfestingar og afskriftatíma.

Þjóðhagsleg framlegð verði hámörkuð. Ekki skal ganga á framlegð eða arðsemi orkuvinnslu og -sölu vegna byggða- eða atvinnusjónarmiða í héraði. Markmiðum á þeim sviðum verði náð með öðrum og almennari hætti, t.d. með hlutdeild nærsamfélags í auðlindarentu.

Dregið verði úr notkun jarðefnaeldsneytis:  Íslendingar flytja inn jarðefnaeldsneyti fyrir
44 milljarða króna í gjaldeyri á ári hverju og er mikilvægt að leitað sé leiða til að draga úr olíunotkun. Helstu ástæður eru orkuöryggissjónarmið, skuldbindingar í loftslagsmálum og skuldbindingar um notkun endurnýj anlegra orkugjafa skv. tilskipunum EES.

Í stýrihópnum sátu þau Vilhjálmur Þorsteinsson, formaður, Bergur Sigurðsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Guðni A. Jóhannesson, Guðrún Jóna Jónsdóttir, Gunnar Tryggvason og Salvör Jónsdóttir. Með hópnum starfaði Helga Barðadóttir sérfræðingur hjá iðnaðarráðuneytinu.

Góð sátt var í stýrihópnum um niðurstöður og þá stefnu sem fyrir liggur en þess ber að geta að Gunnar Tryggvason skilaði séráliti varðandi lengd nýtingarsamninga.

Skýrslan Orkustefna fyrir Ísland

Tengill á tillögur stýrihópsins


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum