Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2011 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Landgræðsluverðlaunin veitt í gær

Frá afhendingu Landgræðsluverðlaunanna.
Frá afhendingu Landgræðsluverðlaunanna.

Landgræðsluverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Gunnarsholti í gær. Ingimar Sigurðsson, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu ahenti verðlaunin fyrir hönd umhverfisráðherra.

Landgræðsluverðlaunin eru árlega veitt einstaklingum, félagasamtökum og skólum sem unnið hafa að landgræðslu og landbótum. Með þessari viðurkenningu vill Landgræðslan vekja athygli þjóðarinnar á fórnfúsu starfi fjölda þjóðfélagsþegna að landgræðslumálum og jafnframt hvetja aðra til dáða.

Verðlaunahafar að þessu sinni eru Gunnar B. Dungal og Þórdís A. Sigurðardóttir í Dallandi, Mosfellsbæ, Gunnar Einarsson og Guðrún Sigríður Kristjánsdóttir að Daðastöðum í Núpasveit, Þorvaldur Jónsson og Ólöf Guðmundsdóttir í Brekkukoti í Reykholtsdal og Vinnuskóli Fljótsdalshéraðs.

Verðlaunagripirnir, Fjöregg Landgræðslunnar, voru unnir af Eik-listiðju á Miðhúsum á Héraði.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum