Hoppa yfir valmynd
15. nóvember 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Fundargerð stýrihóps um velferðarvakt frá 15. nóvember 2011

Fundargerð 57. fundar, haldinn í velferðarráðuneyti þriðjudaginn 15. nóvember 2011, kl. 14.00–16.00.
Mætt: Lára Björnsdóttir, tiln. af velferðarráðherra, Björg Bjarnadóttir, tiln. af Kennarasambandi Íslands, Garðar Hilmarsson, tiln. af BSRB, Hrefna K. Óskarsdóttir, frá ÖBÍ og Þroskahjálp, Guðrún Eyjólfsdóttir, tiln. af SA, Gyða Hjartardóttir, varamaður Gunnars Rafns Sigurbjörnssonar, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Kristján Sturluson, tiln. af Rauða krossi Íslands, Margrét Sæmundsdóttir, tiln. af efnahags- og viðskiptaráðuneyti, Ragnheiður Bóasdóttir, tiln. af mennta- og menningarmálaráðuneyti, Salbjörg Bjarnadóttir, varamaður Geirs Gunnlaugssonar, tiln. af velferðarráðherra, Sigurrós Kristinsdóttir, tiln. af ASÍ,  Vilborg Oddsdóttir, tiln. af Biskupsstofu, Hugrún Hjaltadóttir, varamaður Þórhildar Þorleifsdóttur, tiln. af velferðarráðherra, Lovísa Lilliendahl, verkefnisstjóri velferðarvaktarinnar á Suðurnesjum, og Ingibjörg Broddadóttir.

Formaður bauð tvo nýja fulltrúa velkomna í hópinn, þær Brynju Dögg Guðmundsdóttur Briem varamann Ástu S. Helgadóttur, umboðsmanns skuldara, og Fanneyju Karlsdóttur varamann Kristjáns Sturlusonar, Rauða krossi Íslands.

1. Fundargerð

Fundargerðir 56. fundar var samþykkt.

2. Reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum

Guðni Olgeirsson, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti, kynnti reglugerðina sem gefin var út á degi gegn einelti 21. október 2011. Við gerð reglugerðarinnar var áhersla lögð á víðtækt samráð við hagsmunaaðila. Reglugerðinni er ætlað víðtækt hlutverk hvað varðar skólabrag, agamál, eineltismál, ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í þeim efnum og málsmeðferð þegar misbrestur verður. Markmið reglugerðarinnar er meðal annars að nemendur geti notið bernsku sinnar í skólastarfi, notið hæfileika sinna og séu öruggir í öllu starfi á vegum skólans. Hér er má finna regluferðina: http://www.menntamalaraduneyti.is/log-og-reglugerdir/

3. Félagsþjónustuskýrsla Sambands íslenskra sveitarfélaga

Gyða Hjartardóttir, félagsþjónustufulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, kynnti fyrstu heildstæðu skýrslu sambandsins um félagsþjónustu sveitarfélaga. Skýrslan er umfangsmikil og fjallar um alla helstu þætti félagsþjónustunnar og barnaverndar.

Í umræðum í framhaldi kom fram að á síðastliðnu ári var stofnuð nefnd á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fjallar sérstaklega um félagsþjónustu og samtímis var ráðinn félagsþjónustufulltrúi. Við það urðu þáttaskil í starfi sambandsins og hefur málaflokkurinn fengið meira vægi í umræðum á þeim vettvangi og verðskuldaða athygli.

4. Velferðarvaktin á Facebook

Lovísa Lilliendahl greindi frá athugun á hvort og með hvaða hætti velferðarvaktin gæti farið á Facebook. Í framhaldi var samþykkt að velferðarvaktin færi á
Facebook í tilraunaskyni og mun Lovísa halda utan um verkefnið. Samþykkt var hópur sem standi að baki facebook og í honum verða auk Lovísu, Gyða Hjartardóttir, Garðar Hilmarsson, Guðríður Ólafsdóttir og Brynja Dögg Briem.

Næsti fundur verður 29. nóvember næstkomandi hjá Samtökum atvinnulífsins.
Fundargerð ritaði Ingibjörg Broddadóttir.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum