Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2011 Forsætisráðuneytið

Endurskipað í úrskurðarnefnd um upplýsingamál

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur verið skipuð til fjögurra ára á grundvelli 1. mgr. 15. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Nefndina skipa þau Trausti Fannar Valsson lektor, sem er formaður, Friðgeir Björnsson, fyrrverandi dómstjóri, varaformaður, og Sigurveig Jónsdóttir blaðamaður. Varamenn eru þau Þorgeir Ingi Njálsson dómstjóri, Símon Sigvaldason héraðsdómari og Erna Indriðadóttir fv. fréttamaður.

Eina breytingin, sem orðið hefur á nefndinni frá fyrra skipunartímabili, er að Erna Indriðadóttur kemur inn sem varamaður í stað Helgu Guðrúnar Johnson blaðamanns.

Sjá nánar um starfsemi nefndarinnar á vef hennar ursk.forsaetisraduneyti.is

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum