Hoppa yfir valmynd
23. nóvember 2011 Matvælaráðuneytið

Nýjar rannsóknir styrkja kenningar um að olía eða gas gæti fundist á Drekasvæðinu.

Jan Mayen
Jan Mayen hryggurinn

Lykilforsenda fyrir myndun olíu eða gas er að móðurberg sé að finna á svæðinu, en olía eða
gas myndast úr því við réttar aðstæður í jarðlögunum. Jafnframt þarf að vera til staðar geymsluberg þar sem olían eða gasið safnast í. Sýnin sem nú hafa verið rannsökuð staðfesta tilvist móður- og geymslubergs. Þessar niðurstöður eru jákvæðari heldur en Olíustofnunin þorði að vona. Ýmsir aðrir óvissuþættir eru fyrir hendi um það hvort olía eða gas hafi myndast og varðveist á svæðinu eins og til að mynda hitastigull í jarðlögum og tilvist þakbergs.

Sýnunum var safnað með fjarstýrðum kafbáti á tímabilinu 3. til 19. júlí bæði innan lögsögu Noregs og Íslands. 

Nánari upplýsingar um niðurstöður rannsóknarinnar er að finna á
vef norsku Olíustofnunarinnar.


 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum