Hoppa yfir valmynd
29. nóvember 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Umsóknir um styrki sem Alþingi veitti áður - breytt fyrirkomulag umsókna um styrki og úthlutanir þeirra á safnliðum á fjárlögum

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 12. desember 2011

Á árinu 2012 verða gerðar breytingar á úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga á þann veg að Alþingi hættir úthlutunum á styrkjum til ýmissa verkefna þeirra eins og verið hefur. Alþingi mun áfram ákvarða umfang fjárframlaga til einstakra málaflokka en úthlutun styrkja mun flytjast til ráðuneyta, lögbundinna sjóða, menningarráða landshluta eða annarra sem sjá um og bera ábyrgð á viðkomandi málaflokkum.

Ráðuneytin munu einungis úthluta styrkjum til verkefna sem falla undir málefnasvið þeirra að svo miklu leyti sem þau falla ekki undir lögbundna sjóði eða samninga, svo sem menningarsamninga eða vaxtarsamninga. Því er mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem verkefni umsækjanda um styrk fellur undir. Úthlutað verður einu sinni á ári og eigi síðar en 31. janúar ár hvert.

Verkefni eftir ráðuneytum:

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

  • Stuðningur við áhugahópa og faglegt starf
  • Veittir eru styrkir til að styðja við aðila utan ríkisstofnana sem starfa á verkefnasviði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis og njóta ekki framlaga á fjárlögum.

Velferðarráðuneyti
Styrkir til félagasamtaka
  • Veittir eru styrkir til félagasamtaka sem starfa á verkefnasviði ráðuneytisins og njóta ekki framlaga á fjárlögum.
Verkefnastyrkir á sviði velferðarmála
  • Veittir eru styrkir til félagasamtaka til að hrinda í framkvæmd verkefnum og aðgerðum sem falla að verkefnasviði ráðuneytisins og njóta ekki framlaga á fjárlögum.

Umhverfisráðuneyti
Verkefnastyrkir á sviði umhverfismála
  • Veittir eru styrkir til faglegrar uppbyggingar á sviði umhverfismála með því að styrkja tiltekin verkefni. Einnig eru veittir styrkir sem stuðla að þátttöku í stefnumarkandi alþjóðlegum ráðstefnum og fundum um umhverfismál, einkum þeim sem ráðuneytið sjálft hefur aðkomu að. Ráðuneytið mun á árinu 2012 leggja áherslu á verkefni á sviði umhverfis- og náttúruverndar.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti
Styrkir á sviði listgreina
  • Veitt eru framlög til félagasamtaka og annarra aðila sem starfa á sviði lista og eru ekki aðilar að menningarsamningum né hafa aðgang að sjóðum.

Styrkir á sviði menningararfs

  • Veitt eru framlög til félagasamtaka og annarra aðila sem starfa að varðveislu menningarminja og eru ekki aðilar að menningarsamningum né hafa aðgang að sjóðum.

Styrkir á sviði íþrótta- og æskulýðsmála
  • Veitt eru framlög til félagasamtaka og annarra aðila sem starfa við íþrótta- og æskulýðsmál, skólabúðir o.fl., og hafa ekki aðgang að sjóðum á þessu sviði.

Styrkir til uppbyggingar landsmótsstaða
  • Veitt eru framlög til að styðja við uppbyggingu á landsmótssvæðum í samstarfi við sveitarfélög og fleiri aðila.

Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur og eyðublöð er að finna á vef viðkomandi ráðuneytis: hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti, hjá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, hjá umhverfisráðuneyti og hjá velferðarráðuneyti.

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 12. desember 2011
Umsóknum skal skilað undirrituðum til viðkomandi ráðuneytis fyrir kl. 16. mánudaginn 12. desember 2011.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum