Hoppa yfir valmynd
2. desember 2011 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum.

Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A, laga nr. 99/1993 um framleiðslu verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og til reglugerðar dags. 30. nóvember 2011, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2012.

 

  Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollskrárnr.:     stk. % kr./stk.
  Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar:        
0602.9091 Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna 01.01.-30.06.12 2.200 30 0
  Aðrar:        
0602.9093 Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna 01.01.-30.06.12 3.000 30 0
  Lifandi:        
0603.1100 Rósir 01.01.-30.06.12 2.000 30 0
0603.1400 Tryggðablóm (Chrysanthemums) 01.01.-30.06.12 9.000 30 0
0603.1909 Annars (afskorin blóm) 01.01.-30.06.12 166.250 30 0

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg. 

Skriflegar umsóknir skulu berast til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 15:00 föstudaginn 9. desember 2011.

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,

2. desember 2011.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum