Hoppa yfir valmynd
7. desember 2011 Dómsmálaráðuneytið

Rannsókn á öryggissveit sendiráðs Bandaríkjanna lokið

Ekkert bendir til þess að að starfsmenn öryggissveitar sendiráðs Bandaríkjanna í Reykjavík hafi brotið íslensk lög né að starfsemi sveitarinnar brjóti í bága við þær heimildir sem sendiráðið hefur á grundvelli Vínarsamningsins um stjórnmálasamband ríkja. Þetta er niðurstaða ríkissaksóknara sem tilkynnt hefur verið innanríkisráðuneytinu.

Forsaga málsins er sú að haustið 2010 fór þáverandi dómsmála- og mannréttindaráðherra fram á að ríkislögreglustjóri kannaði starfsemi öryggissveitar sem starfrækt er við sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi. Var þetta gert í kjölfar frétta frá Noregi og Danmörku um að slíkar sveitir hefðu mögulega gerst brotlegar við þarlend lög. Ríkislögreglustjóri óskaði svara frá bandaríska sendiráðinu á Íslandi en í skýrslu embættisins kemur fram að sendiráðið hafi ekki svarað með fullnægjandi hætti. Gat ríkislögreglustjóri því ekki skilað niðurstöðu hvað varðar hugsanleg brot gegn íslenskum lögum. Dómsmála- og mannréttindaráðherra ákvað því að senda embætti ríkissaksóknara málið til þóknanlegrar meðferðar og var það gert með bréfi dagsettu 14. desember 2010.

Sjá má frétt um málið á vef ráðuneytisins 14. desember 2010.

Niðurstaða ríkissaksóknara er sú að ekki séu tök til þess að taka málið til áframhaldandi skoðunar og er því meðferð málsins hætt af. Fram kemur að fyrirliggjandi upplýsingar bendi ekki til þess að starfsmenn öryggissveitar bandaríska sendiráðsins hafi brotið gegn íslenskum lögum né heldur fari starfsemi sveitarinnar í bága við þær heimildir sem sendiráðið hefur á grundvelli Vínarsamningsins um stjórnmálasamband.

Ekki hafi komið fram neinar upplýsingar sem bendi til þess að starfsmenn sveitarinnar hafi í einstökum tilvikum við eftirlitsstörf brotið gegn íslenskum lögum. Gögn sem lágu fyrir er málið barst ríkissaksóknara sýndu ekki fram á að fyrir lægi vitneskja um að refsivert brot hefði verið framið né heldur að grunur hafi verið um slíkt. Sú staða hafi ekki breyst við athugun ríkissaksóknara.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum