Hoppa yfir valmynd
10. desember 2011 Forsætisráðuneytið

Hamingjuóskir til kvennalandsliðs Íslands í handknattleik

Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir hefur sent kvennalandsliði Íslands í handknattleik meðfylgjandi kveðju.

Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar óska ég kvennalandsliði Íslands í handknattleik innilega til hamingju með þann glæsilega árangur að hafa tryggt sér þátttöku í 16 liða úrslitum á sínu fyrsta heimsmeistaramóti, sem nú fer fram í Brasilíu.

Liðsmenn íslenska landsliðsins og allir aðstandendur þess geta verið afar ánægðir með framgöngu sína á heimsmeistaramótinu og sigrar landsliðsins fylla okkur sem fylgjumst með hér heima miklu stolti.

Ríkisstjórn Íslands óskar ykkur alls hins besta í komandi leikjum !

Áfram Ísland !


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum