Hoppa yfir valmynd
14. desember 2011 Matvælaráðuneytið

Styrkir til bættrar einangrunar

Iðnaðarráðuneytið í samvinnu við Orkusetur hefur ákveðið að styrkja húseigendur sem ráðast vilja í endurbætur á einangrun húsnæðis í þeim tilgangi að draga úr orkunotkun og þar
með kostnaði við upphitun þess. Umsóknarfrestur er til 28. desember. RAFRÆN UMSÓKN. 

Um styrk getur sótt hver sá eigandi húsnæðis (byggt fyrir 1945) sem fær húshitunarkostnað sinn niðurgreiddan úr ríkissjóði.

Átaksverkefni 2011 er beint að húsnæði sem byggt er fyrir 1945, áður en lágmarkskröfur til einangrunargilda (U-gilda) byggingarhluta voru settar í byggingarreglugerðir.

Upphæð styrks til einstakra verkefna getur numið allt að kr. 600.000 en þó aldrei hærri upphæð en 50% af innkaupsverði efnis.

Við mat á umsóknum verður horft til orkunotkunar húsnæðis. Forgang hafa verkefni til endurbóta þar sem orkunotkun hefur reynst verulega mikil í samanburði við viðmiðunargildi fyrir sambærilegt húsnæði.

Nánari upplýsingar fást í síma 569 6085. Einnig er hægt að hafa samband við
Orkusetur á netfanginu [email protected].

Umsóknarfrestur er til 28. desember.

Rafræna umsókn má finna hér 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum