Hoppa yfir valmynd
20. desember 2011 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samkomulag um niðurrif, hreinsun og förgun úrgangs á lóð Síldarverksmiðjunnar á Raufarhöfn

Ríkissjóður Íslands, Sveitarfélagið Norðurþing og Síldarvinnslan hf. (SVN) hafa gert með sér samkomulag um niðurrif fasteigna, hreinsun, frágang og förgun úrgangs á Síldarverksmiðjulóð á Raufarhöfn. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, undirritaði fyrir hönd Ríkissjóðs  samkomulagið en undirritað var á Húsavík í dag. Það kveður á um að kostnaður við verkið skiptist jafnt á milli samningsaðila.

Sveitarfélagið Norðurþing, sem fer með skipulagsmál á svæðinu, hefur tekið ákvörðun um að nauðsynlegt sé að ráðast í framkvæmdir á lóðinni sem fela í sér að rífa verður og fjarlægja nokkrar fasteignir sem þar standa. Umræddar fasteignir hafa verið í mikilli niðurníðslu auk þess sem mikil slysahætta stafar af þeim. Þá liggur fyrir að tilvist og ástand þeirra standa allri þróun og frekara skipulagi á svæðinu fyrir þrifum, en í framtíðinni hyggst sveitarfélagið Norðurþing skipuleggja þar íbúabyggð.

Kostnaður við framkvæmdina er áætlaður u.þb. 64 milljónir kr. en verkfræðistofan Mannvit var fengin til að áætla kostnað við framkvæmdirnar. Kostnaðurinn vegna fyrirhugaðra framkvæmda skiptist jafnt á milli samningsaðila. Sveitarfélagið Norðurþinga mun sjá um og bera ábyrgð á framkvæmd verkefnisins og hefjast handa um leið og öll nauðsynleg leyfi, samningar og samþykki hlutaðeigandi aðila liggja fyrir. Áætluð verklok eru á árinu 2012.

Bæjarstjóri Norðurþings, Bergur E. Ágústsson og Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri SVN, undirrituðu samkomulagið ásamt fjármálaráðherra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum