Hoppa yfir valmynd
30. janúar 2012 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra skipar nefnd til að vinna tillögur að þjóðaröryggisstefnu

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, hefur skipað nefnd til mótunar þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland eins og kveðið er á um í þingsályktun sem samþykkt var á Alþingi í haust.  Í nefndinni sitja fulltrúar allra þingflokka en formaður, sem skipaður er af utanríkisráðherra, er Valgerður Bjarnadóttir, alþingismaður.  Aðrir nefndarmenn eru alþingismennirnir Mörður Árnason, Magnús Orri Schram, Einar K. Guðfinnsson, Ragnheiður Elín Árnadóttir, Árni Þór Sigurðsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Eygló Harðardóttir, Gunnar Bragi Sveinsson og Birgitta Jónsdóttir.

Hlutverk nefndarinnar er að fjalla um og gera tillögur um stefnu sem tryggi þjóðaröryggi Íslands á grundvelli her- og vopnleysis. Við mótun stefnunnar á nefndin að taka mið af áhættumatsskýrslu fyrir Ísland frá árinu 2009, stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og öðrum alþjóðlegum skuldbindingum Íslands, m.a. um bann við kjarnorkuvopnum, samþykktum Alþingis um stefnu Íslands í afvopnunarmálum og frumvarpi til laga um friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorkuvopnum og bann við umferð kjarnorkuknúinna farartækja. Nefndin skilgreini meginforsendur stefnunnar og setji fram tillögur um markmið og leiðir til að ná þeim.

Þá hefur ríkisstjórnin samþykkt að fara þess á leit við nefndina að hún taki að sér það verkefni, skv. ályktun Alþingis frá 30. mars 2009, að kanna grundvöll þess að setja á stofn sjálfstætt rannsóknarsetur á Íslandi á sviði utanríkis- og öryggismála.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum