Hoppa yfir valmynd
2. mars 2012 Heilbrigðisráðuneytið

Uppbygging og eftirlit með sjúkraskrá á ábyrgð Embættis landlæknis

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Geir Gunnlaugsson landlæknir
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Geir Gunnlaugsson landlæknir

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ræddi um eftirlitshlutverk Embættis landlæknis og hugmyndir um enn frekari verkefni á því sviði á opnun degi hjá embættinu í dag. Embættið hefur nú fengið ábyrgð á nýju verkefni sem felur í sér yfirumsjón með öllum þáttum sem varða sjúkraskrá á landsvísu og framkvæmd rafrænnar skráningar heilbrigðisupplýsinga.

„Þetta er ákvörðun sem ég tók í samræmi við tillögur stýrihóps um upplýsingatækni. Verkefnið er gríðarstórt sem miklu skiptir að miði hratt og vel, því það er eitt af grundvallaratriðum vel rekins heilbrigðiskerfis að tryggður sé greiður aðgangur að vel og rétt skráðum upplýsingum um starfsemi og þjónustu“ sagði ráðherra meðal annars í ávarpi sínu.

Opið hús hjá Embætti landlæknisGuðbjartur sagði fólk almennt bera virðingu og traust til Embættis landlæknis en því fylgdu jafnframt væntingar og kröfur. Þetta hefði komið skýrt fram í tenglsum við PIP brjóstapúðamálið sem hefði reynst erfitt og raunar mun umfangsmeira en virtist í fyrstu. Það snérist ekki einungis um aðgerðir af hálfu heilbrigðisyfirvalda til að tryggja heilsufarsöryggi þeirra kvenna sem í hlut eiga, heldur vekti það upp margvíslegar spurningar sem snúi að eftirlitshlutverki Embættis landlæknis, ekki síst gagnvart heilbrigðisþjónustu á einkareknum stofum sem veitt sé án greiðsluþátttöku hins opinbera og jafnvel á jaðri þess að teljast heilbrigðisþjónusta að sumra mati, þótt hún sé það lagalega:

„Í tengslum við þetta mál ákvað ég að stofna ráðgjafahóp til að fara í saumana á faglegum þáttum í starfsemi einkarekinna læknastofa og gera tillögur til úrbóta eftir því sem þörf krefur. Það er alveg ljóst að heilbrigðisyfirvöldum er skylt að sinna eftirliti með gæðum allrar heilbrigðisþjónustu í landinu. Þá verður líka að vera tryggt að eftirlitsaðilar hafi aðgang að þeim upplýsingum og gögnum sem nauðsynleg eru til að sinna því á fullnægjandi hátt – en ég verð að segja að viðbrögð lýtalækna og raunar Læknafélagsins í þessu máli varðandi afhendingu upplýsinga og gagna til Embættis landlæknis hafa valdið mér furðu og vonbrigðum.“

Velferðarráðherra á opnu húsi hjá Embætti landlæknisRáðherra sagði að síðustu misseri hefði töluvert verið fjallað um fyrirkomulag eftirlits með velferðarþjónustu almennt og þörf fyrir að styrkja það og efla. Nú væru til skoðunar í velferðarráðuneytinu hugmyndir um að samræma á einum stað eftirlit með allri velferðarþjónustu:

„Þetta sé ég fyrir mér að gæti gerst á grundvelli laga um embætti landlæknis og lýðheilsu, það er að segja með því að víkka gildissvið laganna og þar með embættisins og koma á fót sjálfstæðri einingu innan þess sem bæri ábyrgð á eftirliti með velferðarþjónustu.“ Ráðherra sagði þetta enn á umræðustigi enda þyrfti málið nákvæma skoðun og vandaðan undirbúning.

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum