Hoppa yfir valmynd
27. apríl 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Vitundarvakning um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum

Börn frá Ægisborg sungu í tilefni undirritunarinnar í Þjóðmenningarhúsinu
Börn frá Ægisborg sungu í tilefni undirritunarinnar í Þjóðmenningarhúsinu

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra undirrituðu í dag samning til þriggja ára um vitundarvakningu um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum. Undirritunin fór fram við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík.

Halla Gunnarsdóttir, formaður verkefnisstjórnar og aðstoðarmaður innanríkisráðherra, kynnti samninginn í upphafi athafnarinnar og síðan sögðu ráðherrarnir nokkur orð. Börn af Ægisborg sungu nokkur lög og í lokin undirrituðu ráðherrarnir samninginn.

Samningurinn er í samræmi við sáttmála Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misnotkun og kynferðislegri misneytingu gegn börnum en Ísland hefur verið aðili að samningnum síðan í febrúar 2008. Fullgilding sáttmálans stendur nú yfir en hluti hans kveður á um að beina fræðslu um kynferðislegt ofbeldi að börnum og fólki sem á samskipti við börn í starfi sínu.

Að tillögu ríkisstjórnar samþykkti Alþingi 25 milljóna króna fjárveitingu til verkefnisins á þessu ári og í samningnum er gert ráð fyrir að verja 16 milljónum króna á ári næstu tvö árin til vitundarvakningarinnar með fyrirvara um samþykki Alþingis. Að því loknu verður árangur verkefnisins metinn og framhaldið ákveðið. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum