Hoppa yfir valmynd
7. maí 2012 Innviðaráðuneytið

Samið um 10 ára tilraunaverkefni um eflingu almenningssamgangna

Fulltrúar Vegagerðarinnar og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu skrifuðu í dag undir samkomulag um 10 ára tilraunaverkefni um eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Tilgangur verkefnisins er að tvöfalda hlutdeild almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu, lækka samgöngukostnað heimila og samfélagsins og stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda.

Innanríkisráðherra og fjármálaráðherra skrifuðu undir samning um eflingu almenningssamgangna í dag ásamt fulltrúum Vegagerðar og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Innanríkisráðherra og fjármálaráðherra skrifuðu undir samning um eflingu almenningssamgangna í dag ásamt fulltrúum Vegagerðar og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Skrifað var undir samkomulagið við Höfða í Reykjavík. Óku fulltrúar sveitarfélaganna, ráðuneytanna og Vegagerðarinnar saman að Höfða í strætisvagni frá Kópavogi og með viðkomu við Arnarhvol. Þar fór undirskriftin fram utan dyra.

Ríkisstjórnin heimilaði innanríkisráðherra og fjármálaráðherra að ganga frá samningnum á fundi sínum þann 17. apríl og borgarstjórn Reykjavíkur og bæjarráð allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem eru aðilar að Strætó bs. samþykktu að veita stjórn SSH heimild til undirritunar. Sveitarfélögin eru Reykjavík, Seltjarnarneskaupstaður, Kópavogsbær, Garðabær, Hafnarfjörður, Sveitarfélagið Álftanes og Mosfellsbær.

Meginmarkmið og tilgangur tilraunaverkefnisins er m.a. eftirfarandi:

  • A.m.k. að tvöfalda hlutdeild almenningssamgangna í öllum ferðum sem farnar eru á höfuðborgarsvæðinu á samningstímanum.
  • Að vinna að lækkun á samgöngukostnaði heimila og samfélagsins vegna umferðar og umferðarslysa.
  • Að stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda í samræmi við aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum.
  • Að skapa forsendur til frestunar á stórum framkvæmdum í samgöngumannvirkjum með öflugri almenningssamgöngum sem dragi úr vexti bílaumferðar á stofnbrautakerfinu á annatímum.

Samningsaðilar skuldbinda sig til að leggja fjármuni til verkefnisins sem hér segir:

a) Vegagerðin leggur fram 350 milljónir króna á árinu 2012, eftir það 900 milljónir króna árlega á samningstímanum og 550 milljónir króna lokaárið 2022 til reksturs almenningssamgangna á starfssvæði SSH.

b) Eigendur Strætó bs. skuldbinda sig til að árlegt framlag þeirra til reksturs Strætó bs. verði ekki lægra á samningstímanum en sem nemur framlagi þeirra til reksturs byggðasamlagsins á árinu 2012.

Fjárframlög samningsaðila skulu taka breytingum í samræmi við vísitölur sem tilgreindar eru í samningnum.

Í samningaviðræðum hefur verið gengið út frá því að viljayfirlýsingin frá september 2011 standi óbreytt, að ríkið leggi 1.000 milljónir króna á ári í tíu ár í verkefnið, alls 10 milljarða króna. Til SSH fari 90% af þeirri fjárhæð og 10% í rekstur almenningssamgangna milli höfuðborgar­svæðisins og byggðakjarna á áhrifasvæði þess að undangengnum samningum við viðkomandi landshlutasamtök sveitarfélaga.

Stýrihópur, skipaður tveimur fulltrúum ríkisins og tveimur fulltrúum sveitarfélaganna skal hafa yfirumsjón með framkvæmd og úrvinnslu samningsins. Undir stjórn stýrihópsins verður framvinda og árangur verkefnisins metinn með kerfisbundnum hætti á tveggja ára fresti og samningurinn endurskoðaður. Við þessa reglubundnu endurskoðun skulu samningsaðilar skilgreina aðgerðir og viðbrögð sem þörf er á til að tryggja framvindu í samræmi við markmið samningsins. Meðal annars verða forsendur fyrir frestun umfangsmikilla vegaframkvæmda endurmetnar.

Skrifað undir samning um eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.

Starfshópur innanríkisráðuneytisins undirbjó samningsgerðina af hálfu ríkisins og sátu í eftirtaldir: Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri sem var formaður hans, Baldur Grétarsson, deildarstjóri hjá Vegagerðinni. Jónas Snæbjörnsson, svæðisstjóri, Vegagerðinni, Kristín H. Sigurbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri, Vegagerðinni. Þorsteinn R. Hermannsson, verkfræðingur, innanríkisráðuneytinu og Ögmundur Hrafn Magnússon, fjármálaráðuneytinu.

Í samninganefnd SSH sátu eftirfarandi: Gunnar Einarsson, bæjarstjóri sem var formaður hennar, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri, Ellý Katrín Guðmundsdóttir borgarritari og Haraldur Sverrisson bæjarstjóri. Með nefndinni starfaði Páll Guðjónsson, framkvæmdastjóri SSH.

Skrifað undir samning um eflingu almenningssamgangna.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum