Hoppa yfir valmynd
21. maí 2012 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum.

Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A, laga nr. 99/1993 um framleiðslu verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og reglugerð nr. 1102/2011, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið 1. júlí - 31.desember 2012.


 


Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollskrárnr.:

stk. % kr./stk.

Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar:



0602.9091 Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna 01.07.-31.12.12 1.650 30 0

Aðrar:



0602.9093 Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna 01.07.-31.12.12 2.160 30 0

Lifandi:



0603.1400 Tryggðablóm (Chrysanthemums) 01.07.-30.12.12 6.500 30 0
0603.1909 Annars (afskorin blóm) 01.07.-30.12.12 118.750 30 0

 

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

 

Skriflegar umsóknir skulu berast til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 15:00 þriðjudaginn 29. maí 2012.

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,

21. maí 2012.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum